Hjónin flytja á Álftanesið

11. janúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Jæja, þá er þetta er komið á hreint. Við hjónin erum komin með leigjendur að íbúðinni okkar í Stekkjartúni. Við erum einnig komin með íbúð á Álftanesinu sem við verðum í þetta tilrauna ár okkar í Reykjavík.

Svona er sem sagt sagan.

Aníka missti samninginn sinn á Passion á Akureyri. Kemst í skólann þessa önnina og fær samning á stofunni Salon Reykjavík. Þetta er sama stofa og hún vann á fyrir áramót, eða á síðustu önn. Aftur á móti er meistarinn þar, hann Arnar, tilbúinn að vera með Aníku lengur í starfi en bara samningstímann. Við settum þar með íbúðina okkar á leigu á mánudaginn 5. janúar og fengum strax svör. Íbúðin er nú leigð og við erum búin að vera að leita okkur að íbúð hér í borginni. Sem betur fer hafði ég samband við félaga minn Hannes Inga, sem er staddur í Edinburgh þessa dagana. Kemur þá í ljós að leigjendur að íbúðinni hans og Þóru, sögðu upp leigunni fyrir stuttu og væru tilbúin að losna sem fyrst. Við Aníka mætum á svæðið og skoðum íbúðina. Okkur leyst mjög vel á íbúðina og verðum þar frá 1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2010, í minnsta lagi. Íbúðin þeirra er eins og smækkuð útgáfa af okkar. Á jarðhæð, sér inngangur, sólpallur, eitt svefnherbergi og rosa flott.

Nýja heimilsfangið okkar verður: Asparholt 2, 225 Álftanes.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Efnisorð: , , ,

Athugasemdir (3) við “Hjónin flytja á Álftanesið”

  1. Aníka segir:

    get ekki beðið eftir að fjarbúðin taki enda, sykurpúði ;)

  2. Helgi Steinar segir:

    Klúður!! :)

  3. Egill segir:

    Vonandi ganga flutningarnir vel! Heyrumst með vefsíðugerðina þegar um hægist hjá okkur báðum :)

Skrifa athugasemd

/>

/>

Leyfilegt XHTML: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <pre lang="" line="" escaped="">