Köttur að nudda hvolp

2. mars 2009 kl. - Helgi Hrafn

Shit hvað það er kúl að ná þessu á myndband. En talsetningin er jafnvel enn betri :)

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Góð helgi að baki

1. mars 2009 kl. - Helgi Hrafn

Nú er enn ein helgin að baki og það má segja það sé farið að styttast í sumarið. Það var rosalega gott veður í gær, sól og blíða.

Mamma útskrifaðist í gær úr meistaranáminu sínu úr Háksóla Íslands. Ég vil nota tækifærið og óska henni til hamingju með þennan merka áfanga hjá sér. Síðan má ekki gleyma því að pabbi átti líka afmæli í síðasta mánuði, til hamingju með afmlið pabbi! (ég gleymdi ekki afmælinu hans, ég hringdi í hann á afmælisdaginn sinn líka). Hann varð hvorki meira né minna en 50 ára þann 14. febrúar. Þau héldu mjög fína veislu í gær, þar sem þau skelltu partíinu saman í eitt og leigðu sal hérna í borginni og buðu vinum og vandamönnum. Eftir veisluna héldum við fjölskyldan, amma úr Mýró og amma og afi úr Miðtúni á Lækjabrekku í mat, Humarsúpa, lambakjöt og sorbet. Mjög góður matur og hugguleg stemning þetta kvöld.

Í dag vorum við hjónin að mestu í leti, allavegana Aníka. Ég skrapp þó á körfuboltaleik, Leiknir – HK, þar sem HK stein lá fyrir Leiknismönnum, 94 – 57. Eftir leikinn fór ég svo heim og tók þátt í letinni á sófanum.

Sem sagt, mjög góð helgi :P

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Kveikja á network timemachine backup, hluti 2

28. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Ég skrifaði um um það hvernig kveikja skal á þeim möguleika að velja Network share disk sem afritunarstaður fyrir Time Machine á Mac um daginn.

defaults write com.apple.systempreferences TMShowUnsupportedNetworkVolumes 1

Ég lenti í bölvuðu veseni með þetta og var að fá villuskilaboðin “The backup disk image could not be created”,

Time Machine error

en þá rakst ég á http://roncox.org/7 og http://roncox.org/21.

Þar er sagt frá því að einhver uppfærslan á Leopard kom í veg fyrir að að það er hægt að notast við network drif með Time Machine, líklegast 10.5.2 miða við leitarniðurstöðurnar sem ég fékk. En lausnin er einföld, einfaldlega útbúa “backup disk image” á tölvunni hjá þér og síðan afrita það yfir á network drifið.

Heiti skráarinnar sem er útbúin saman stendur af heiti vélarinnar, MAC addressunni á Ethernet kortinu (án tvípunktanna) og svo .sparsebundle í endann. Vélin mín heitir H3mac, og við skulum segja að MAC addressan er 005673efd54e. Þar með yrði heitið á skránni hjá mér H3mac_005673efd54e.sparsebundle. Til að sjá MAC addressuna er einfaldast að fara í System Preferences, velja þar Network, velja svo Ethernet í vinstri valmyndinni, smella svo á Advanced, og velja svo flipan Ethernet.

MAC address

Myndin hans Rons frá http://roncox.org/12

Til að útbúa þessa skrá síðan (H3mac_005673efd54e.sparsebundle) þarf að opna Terminal og nota forritið hdiutil. Skipunin sem ég notaði er ekki alveg eins og Rons þar sem ég vildi gefa upp hversu stór skráin á að vera.

hdiutil create -size 185g -fs HFS+J -type SPARSEBUNDLE -volname "Backup of H3mac" H3mac_005673efd54e.sparsebundle

Síðan afritaði ég þessa skrá yfir á network drifið.

mv H3mac_005673efd54e.sparsebundle /Volumes/h3macbackup/

Þar með var þetta komið, og ég setti afritunina í gang.

Time Machine running

Annað

1. Ég reikna með að fólk kunni að útbúa network drif til að notast við þetta. Annars er er ég að notast við network drif á margmiðlunar þjóninum mínum. Þar er ég með nóg af plássi fyrir þetta. Sá þjónn keyrir Gentoo 2.6.26-r4 og notast ég við Samba aðalega fyrir gagnageymslu og margmiðlunarboxin, NFS til að spila HD efni á margmiðlunarboxinu í stofunni, og núna AFP fyrir afritunarplássið fyrir Mac Book Pro vélina mína.

2. Ég reikna líka með því að fólk kunni að tengjast network drifum á Mac. :P Opna Finder, velja Go, velja Connect to Server. Þar er síðan skrifuð inn slóðin til að tengjast drifinu. Ef það er yfir Samba er það smb://SERVER/SHARE_NAME, ef það er AFP er það afp://SERVER/SHARE_NAME. SERVER getur verið IP tala þjónins eða heiti.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Hýsingaraðili að flytja vefi á milli þjóna

27. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Eftir að hafa hjálpað Bjögga, vefstjóra Maclantic, að færa Maclantic.com yfir á vefþjóna hjá MediaTemple, og svo þaðan aftur yfir á Fasthost. Kom í ljós að Fasthost ákvað að færa vefina hans Bjögga, og líklega aðra líka, á milli þjóna hjá sér án þess að ganga frá DNS færslum alemennilega. Bjöggi fékk bara allt í einu tölvupósti sem sagði að hýsingin hafi verið flutt og ætti ekki að vera truflun fyrir hann. En, auðvitað var það ekki svo einfalt. Fullt, fullt af liði sá ekki vefinn á nýju IP tölunni. Ég sá tildæmis vefinn ekki þegar ég kom heim þar sem DNS færslur áttu enn eftir að uppfærast.

Mér fannst þetta bara svo hræðilega ílla gert af þeim án þess að láta vita, og hvað þá að ganga ekki betur frá eftir sig. Til dæmis með því að lækka TTL löngu fyrir breytingu á DNS og gera síðan breytinguna og þá tekur hún fyrr gildi út um allan heim.

Allavegana, Maclanic.com er núna Maclantic.is og er hýst hér á landi.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Kveikja á network timemachine backup

26. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Ég lenti í því í dag að einn harðdiskurin hjá mér “dó”. En þegar ég skoðaði þetta nánar þá komst ég að því að SATA stýringin sem þessi diskur var tengdur við, var dauð. Þannig ég fékk mér nýja og tengdi allt á ný. Ekkert sérstakt við það, svo sem. Nema hvað að diskurinn sem ég hélt að væri dauður innihélt allar ljósmyndir fjölskyldunnar, og ég var ekki búinn að afrita tvö síðustu árin. Nú er ég búinn að ganga frá því.

Aftur á móti fór ég að skoða mig um á netinu, þar sem mér datt í hug að athuga hvort hægt væri að notast við Time Machine á Mac yfir samba share. Þá rakst ég á þessa blogg færslu http://blog.xemantic.com/2008/04/timemachine-backups-on-smb-share.html

Lausnin er einfaldlega að kveikja á möguleikanum með því að keyra skipunina hér fyrir neðan í terminal;

defaults write com.apple.systempreferences TMShowUnsupportedNetworkVolumes 1

og þá er hægt að velja til dæmis samba shared diska til að vera Time machine backup diskurinn.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Hef ekkert að segja

25. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

.. af hverju er ég ekki farinn að sofa?

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Selt: iPod Touch 16Gb 1gen

24. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Félagi minn ætlar að selja iPodinn sinn. Um er að ræða mjög vel með farinn iPod Touch 16Gb 1gen. Það sjást að sjálfsögðu notkunar rispur á bakhliðinni en það eru engar rispur á skjánum. Aftur á móti fylgir honum kassi, bækingar, USB snúra og headset.

Gangverð svona iPoda er 40.000 – 45.000 en vegna efnahags ástands er verðið sett 35.000,-. Fyrstur kemur fyrstir fær! (nýr kostar 79.990,- í Apple IMC, reyndar 2gen).

Sendið mér tpóst á helgih@gmail.com eða skrifið athugasemd við þessa færslu.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

UMFÁ – HK, 68 – 70

23. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Ég mætti á annar deildar leik UMFÁ – HK í kvöld. Þið sem hafið verið að lesa bloggið mitt eitthvað vitið að ég mætti á æfingu hjá UMFÁ þar sem við búum hérna rétt hjá íþróttahúsi Álftaness. Annars hef ég verið að spila körfubolta á mánudögum og fimmtudögum með HK.

Leikurinn var mjög spennandi og eftir fyrsta leikhluta virtist sem HK ætlaði að taka þetta. En í örðum leikhluta tóku UMFÁ menn almennilega á því og náðu að vera tveimur stigum yfir í hálfleik. Þriðji leikhluti var jafn spennandi og sá annar þar sem HK náði að snúa þessu við og var tveimur stigum yfir eftir þann leikhluta. Í fjórða og síðasta leikhluta héldust liðin í hendur, hvað stigin varðar. UMFÁ náði að jafna nokkrum sinnum, en aldrei að fara framúr HK. Þegar 8,9 sekúndur voru eftir af leiknum og 1 sekúnda eftir af skotklukku HK, átti HK innkast. HK missti boltann og leikmaður UMFÁ náði hraðarupphlaupi að körfu HK, en klúðraði einföldu layupi. HK náði frákastinu og þá voru um 3 sekúndur eftir af leiknum og tíminn rann út. HK sigraði með tveggja stiga mun.

Lokatölur UMFÁ 68 – 70 HK, og leikhlutarnir fóru svona:

  1. 16 – 21
  2. 22 – 15
  3. 11 – 15
  4. 19 – 19
Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Konunglegur konudagur

22. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Dagurinn í dag byrjaði bara eins og síðstu sunnudagar hjá okkur hjónunum hérna í borginni. Við að hanga í stofunni og horfa á hvern sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum, sem við höfum ekki náð að horfa á í vikunni. En í tilefni af konudeginum fékk Aníka að velja sér bíómynd að fara á, og varð He’s Just Not That Into You í Luxus sal í Smárabíó fyrir valinu. Sú mynd var bara fínasta chick flick, ég hlóg meira að segja nokkrum sinnum.

Þar til á morgun, takk í bili.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Laufléttur laugardagur

21. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Þessi dagur var mjög þægilegur hjá okkur hjónunum. Við byrjuðum á því að fara í IKEA og Kringluna til að klára minni háttar búðarferðir okkar frá því við komum. Síðan héldum við bara heima á leið og höfðum það þægilegt. Bökuðum okkur pizzu og horfðum á The Curious Case of Benjamin Button.

Þar til á morgun, takk í bili.

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email